|
|
| Brasserie
Askur Suðurlandsbraut 4 IS - 108 Reykjavík Iceland Tel. + 354 553 9710 Fax + 354 553 9710 |
German English |
![]() |
|
Þann 2. september árið 1966 var Grill-inn Askur stofnaður,
einn fyrsti staðurinn á Íslandi sem bauð upp á hamborgara að amerískum sið.
Allt frá byrjun hefur markmið Asks verið að nota aðeins fyrsta flokks hráefni
ásamt því að vera fyrstur í Evrópu með fitumælingar á kjöti. Einnig að bjóða
upp á ýmiskonar nýjungar eins og t.d. að matreiða í opnu eldhúsi þannig
að viðskiptavinurinn gæti séð hvað var verið að elda. Askur var fyrsti íslenski
BBQ staðurinn og bauð upp á grillaða kjúklinga, glóðarsteikur, lambakótilettur,
nautasteikur og kokteilsósuna frægu ásamt hráu grænmetissalati. Við á Aski leggjum okkur fram við að hafa allt fyrsta flokks og höfum gæði, þjónustu og notalegt umhverfi að leiðarljósi. Brasserie er samheiti yfir þægilega veitingastaði sem eru ekki of formlegir ef svo má segja. Staðir sem fólki líður vel á , hvernig sem það er klætt. Brasserie er milli staður, þ.e. ofar en Bistro en þrepi neðar en fínn veitingastaður - léttari og hressari og oft á tíðum meira sóttur en dýrari veitingastaðirnir. Brasserie í Frakklandi voru og eru enn samkomustaðir listamanna sem oft fengu mat og aðrar veitingar gegn því að mála og skreyta staðina. Brasserie er samheiti yfir þroskaða og góða veitingastaði með góðan mat á góðu verði og góða þjónustu í þægilegu umhverfi. Við á Brasserie Aski erum stolt af öllu sem við gerum og þetta er það sem við erum með í boði: Ódýrt hádegishlaðborð alla virka daga. Matseðill sem hentar allri fjölskyldunni. Létt og góð þjónusta. Ferskleiki í hráefni. Steikarhlaðborð á sunnudagskvöldum fyrir alla fjölskylduna. Ódýrt borðvín. Veisluþjónustu fyrir stærri og smærri veislur. Skoðaðu matseðilinn Fyrir utan matseðill, býður Brasserie Askur upp á heitt og kalt hlaðborð í hádegi alla virka daga, ásamt glæsilegum salatbar, sem er fjölbreyttur og framandi. Á sunnudagskvöldum er margrétta steikarhlaðborð, sem hefur notið mikilla vinsælda, þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi. Við á Brasserie Ask erum stolt af að kynna nýja vínseðilinn okkar. Við ríðum á vaðið og lækkum verð á borðvíni og komum þannig til móts við viðskiptavini okkar og þá breyttu matar- og vínmenningu sem orðin er á Íslandi. Sem dæmi má nefna að vín hússins er alltaf sérvalið gæðavín á aðeins 1790 krónur. Þá má nefna aðra nýjung sem er jafnaðarálagning á víni okkar, þ.e. við leggjum sömu krónutölu á ódýru flöskuna og þá dýru - ekki prósentu álagningu og hegnum því ekki viðskiptavinum okkar fyrir að velja betri vínin af seðlinum. |
![]()
|
•
Nordic Store •
Car Rentals in Iceland •
Hotels in Iceland •
Flights
Commerce & Services •
Culture & Arts •
Education •
Entertainment •
• Fisheries •
Health •
Industries •
News & Media •
Public Authorities •
• Recreation & Sports •
Shopping •
Shipping & Transport •
Tourism •
• Home • Search • About Randburg •
Copyright © randburg.com. All rights reserved.