![]() ![]() ![]() ![]() |
| Randburg.com -> Iceland -> Tourism -> Outdoor living |
|
Fjallabak Pósthólf 1622 121 Reykjavík Sími. 511 3070 Fax 511 3071 Local homepage |
|
|
Skíða- og göngusérfræðingar Íslands Fjallabak dregur nafn sitt af vel þekktri leið milli Rangárvalla- og Skaftafellssýslna norðan Mýrdalsjökuls og er í daglegu tali nefnd Fjallabaksleið. Leiðin liggur í gegnum stórbrotið landslag hálendis Íslands. Fjallabak hefur starfað á þessu sviði í 25 ár og veit vel hvað útivist á Íslandi snýst um. Við sérhæfum okkur í gönguferðum af bestu gerð, skíðaferðum og öðrum útivistarferðum fyrir litla hópa. Við skipuleggjum einnig jeppaferðir fyrir einstaklinga allt árið um kring. Skíðamennska Með hækkandi sól rennum við okkur niður fjöll Tröllaskagans og upplifum einstaka náttúru í djúpum fjörðum Norðurlands. Fyrri hluta vors skipuleggjum við gönguskíðaferðir á hálendinu og upplifum heimskautaævintýri af bestu gerð. ![]() Upplifun Á hálendinu og við ströndina skipuleggjum við einnig þægilegar ferðir á jeppum eða í litlum rútum. Akstur er hóflegur og við gefum okkur tíma til að upplifa náttúruna og ganga nokkra tíma á degi hverjum. Lengstu ferðirnar eru sjö daga en auðvelt er að lengja ferðina með því að bæta annarri við eða gönguferð. Hver ferð einbeitir sér að ákveðnum hluta landsins, t.d. „Upplifun vesturstrandarinnar” eða „Suðurströndin og hálendið” en aðrar ferðir hafa þema eins og jarðfræði, fuglalíf og hvalaskoðun. Jeppaævintýri með þaulreyndum bílstjóra Þú getur ferðast með okkur allt árið um kring og jeppar og bílstjórar okkar eru alltaf til taks. Sumir jeppanna eru breyttar og komast hvert sem er bæði sumar sem vetur. Við skipuleggjum ferðir með fullu fæði og vali á gististöðum. |
![]()
|
· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·
Copyright © randburg.com - All rights reserved.