Randburg.com -> Iceland -> Tourism
Flughestar.
Flugumýri
560 Varmahlíð, Skagafirði Iceland

Tel: +354 - 453 8814 / 895 7814
Fax +354 453 8814

Email us for more information
Visit Flughestar.



Hotel varmahlid


Flugumýri - hrossaræktarbú

Flugumýri er eitt þekktasta hrossaræktarbú landsins. Bærinn Flugumýri í Skagafirði hefur allt frá upphafi Íslandsbyggðar verið nátengdur hrossum.

Í Landnámu er getið um einn mesta gæðing landnámsaldar, Flugu, sem fræg var fyrir kosti sína og snilli. Eigandi hennar Þórir dúfunef þreytti fyrstu kappreiðar sem sögur fara af á Íslandi uppi á Kili og fór Fluga þar með sigur hólmi. Hryssan var Þóri svo dýrmæt að hann nefndi bæ sinn Flugumýri eftir henni.

Langt er um liðið síðan Þórir dúfunef þandi Flugu á Kili og enginn veit hvaða spor hún skildi eftir sig í íslenskri hrossarækt en e.t.v. spinnast frá henni óljósir þræðir allar götur til þeirra hrossa sem nú eru á Flugumýri. Flugumýrarhrossin eru gjarna bleikálótt eða móálótt og löngu landsþekkt en langþekktastur er þó stóðhesturinn Ófeigur 882 frá Flugumýri. Ófeigur komst til æðstu metorða, hlaut heiðursverðlaun sem kynbótahestur og kemur víða við sögu í íslenskri hrossarækt í dag. Fjölskyldan á Flugumýri

Á Flugumýri búa þau Eyrún Anna Sigurðardóttir og Páll Bjarki Pálsson ásamt börnum sínum Ástu Björk, Eyrúnu Ýri, Sigurði Rúnari, Þórdísi Ingu og Júlíu Kristínu, og hafa stundað þar hrossarækt síðan 1988. Páll Bjarki er löngu landsþekktur tamningamaður og knapi og hefur mikla reynslu í að temja og sýna hross.

meri

Horse

line

· Agriculture · Commerce & Services · Culture & Arts · Education · Entertainment ·
· Fisheries · Health · Industries · News & Media · Public Authorities ·
· Recreation & Sports · Shopping · Shipping & Transport · Tourism ·

· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·

Copyright © randburg.com. All rights reserved.

Randburg Is Your Path to The Future of Information