FRAMTAK

Drangahraun 1b
220 Hafnarfjörður

Sími 565 2556
Gsm 892 0941 / 862 8554 / 892 0947
Fax + 354 565 2956

E-mail

English
English



TurboService

DELPHI
Garrett

Dinamic Oil

MKG
ITUR Pumps

DENSO
UNIService

C.C.Jensen

Stanadyne, Diesel Systems
Holset Turbo

Mak
Framtak veitir kraftmikla og lipura viðgerðaþjónustu
Framtak var stofnað 1 júni 1988, af Magnúsi Aadnegard, Óskari Björnsssyni og Þór Þórssyni. Í upphafi voru starfsmenn aðeins tveir og fyrirtækið í 120 fm húsnæði. Síðan hefur orðið mikil þróun í rekstrinum og í dag eru starfsmenn fleiri enn 60 húsnæðið orðið 2500 fm og fyrirtækið orðið með stærri fyrirtækjum í þessari grein.
Vélaviðgerðir
Vélaverkstæði Framtaks hefur mjög góðan tækjabúnað til viðgerða og vélastillinga. Malin vélagreinir, sveigjumælir sem skilar niðurstöðum á tölvutæku formi, titringsmælir fyrir kúlulegur, laser afréttingabúnaði, jafnvægisstillibekk, ásamt mörgu öðru enn stefna fyrirtækisins er að vera ávalt í fremstu röð hvað varðar tækjabúnað til vélaviðgerða.
Fræs fyrir allar stærðir slífa. Fræsum einnig vélarblokkir, þéttifleti strokkloka og aðra fleti. Fræsar fyrir allar tegundir ventlasæta.
Sveigjumælir sem gefur möguleika á að fá niðurstöður útprentaðar í tölum og línuritum. Samanburður milli mælinga auðveldur.
Vélagreinir. Hentugur til að athuga ástand véla. Nýtist sem hluti af föstu viðhaldi og einnig til bilanagreininga.
Ventlaslípivélar fyrir allar stærðir af ventlum.

Rennismíði
Renniverkstæði er með margar stærðir af rennibekkjum allt að fjóra metra milli odda, fræsivél af stærstu gerð, hónara fyrir steina- eða demantshónun á slífum allt að 1000 mm í þvermál og tölvustýrða jafnvægisstillivél fyrir túbínurótora, dæluhjól og aðra hluti allt að 3000 kg.

Járnsmíði
Plötu- og stálsmíðaverkstæði er búið klippum og beygjuvél fyrir plötujárn ásamt öllum gerðum af rafsuðuvélum, vökvalokk og öðrum verkfærum til stálsmíða. Starfsmenn hafa ISTEN 287 hæfnisvottunarstaðal í suðu.

Túrbínuviðgerðir
Á Dieselverkstæðinu er fullkomin aðstaða til þjónustu og viðgerða á olíukerfum. Verkstæðið hefur yfir að ráða nýjustu tækni til stillingar á oliuverkum og dælum. Nýr stillibekkur sem tekur rafmagnsstýrð olíuverk. Tölvustýrt spíssaprufutæki sem metur ástand eldsneytisloka á vélrænan máta og niðurstöðum er skilað á útprentuðum.

Dieselstillingar
Dieselverkstæði Framtaks er í stakk búið til að takast á við þá nýju tækni sem er að koma inn á markaðin með vaxandi þunga. Hér er átt við tilkomu nýrra gerða af eldsneytiskerfum fyrir dieselvélar og sífellt aukna raf og tölvustýringu slíkra kerfa eins og “Common Rail” sem kallað hefur verið einbunudiesel. Risafyrirtækin Delphi og Denso sem bæði vinna að þróun þessara kerfa eru meðal fyrirtækja sem Framtak þjónustar. Til að mæta þessari þróun hefur verið unnið að endurnýjun tækjabúnaðar og þjálfun starfsmanna dieselverkstæðis Framtaks, sem er nú þegar fjölmennasta og best búna dieselverkstæði landssins til að sinna viðgerðum á hefðbundnum gerðum eldri eldsneytiskerfa.

Dieselverkstæðið, verslunin, sölu- og markaðsdeild útvega síðan varahluti í nánast allar gerðir dieselkerfa eins og Delpi, Denso, Bryce, Stanadine, L Orange og Bosch.

framtak_02.jpg

framtak_01.jpg Gámaviðgerðir og smiðja
Framtak rekur gámaverkstæði sem er staðsett á Sundahafnarsvæðinu. Þar er góð aðstaða til viðgerða á öllum tegundum gáma og allrar almennri smiðjuvinnu.

framtak_03.jpg

Sölu- og markaðsdeild
Framtak leggur áherslu á að hafa ætíð á boðstólum fjölbreyttar rekstarvörur frá UNIservice og úrval af mælum og þreifurum frá TEMPRESS.
Þegar kemur að varahlutunum er mikið lagt upp úr hraðri og öruggri þjónustu, og góð sambönd við erlenda framleiðendur og flutningsaðila tryggja stuttan biðtíma eftir þeim varahlutum sem viðskiptavinir okkar kunna að þurfa á að halda.
Hér er að finna nánast allan þann búnað sem þarf fyrir skip og til iðnaðar svo sem ventla og lensikistur, dælur, síur og loftpressur.
Framtak hefur umboð fyrir kranaframleiðandann MKG í Þýskalandi, sem framleiðir þilfars- og bílkrana. Nú þegar eru u.þ.b. 80 MKG kranar á íslenskum skipum, þar af 7 á varðskipum Landhelgisgæslunar.

· Agriculture · Commerce & Services · Culture & Arts · Education · Entertainment ·
· Fisheries · Health · Industries · News & Media · Public Authorities ·
· Recreation & Sports · Shopping · Shipping & Transport · Tourism ·

· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·

Copyright © randburg.com - All rights reserved.

Randburg Is Your Path to The Future of Information