English

Gísli Sigurðsson
Garðaflöt 25
210 Gardabær

Sími 565 7855
Fax 565 9325

E-mail

gisli01.jpg

GÍSLI SIGURÐSSON
Nokkur orð um málaraferil hans

Gísli er fæddur 1930 í Úthlíð í Biskupstungum og þar ólst hann upp. Á uppvaxtarárum hans þar var fátt sem vakið gæti áhuga ungs manns á málaralist. En landslagið gerði það, fyrst og fremst Úthlíðarhraun. Hann var farinn að mála með vatnslitum myndir úr hrauninu áður en hann hafði nokkru sinni séð málverk.

Gísli er að mestu sjálfmennaður myndlistarmaður. Atvikin högugðu því svo til að hann tók verzlunarpróf og gerðist blaðamaður, síðast í 33 ár sem umsjónarmaður Lesbókar Morgunblaðsins, þar sem hann hefur að staðaldri fjallað um myndlist. Jafnframt þeirri vinnu hefur Gísli lagt stund á olíumálverk og naut á fyrri stigum mest tilsagnar Baltasars við tæknileg úrlausnarefni.

Milli tvítugs og þrítugs var viðfangsefnið landslag, en áhrifin frá módernismanum voru sterk á 6. áratugnum og á fyrstu sýningu sinni í Bogasal Þjóðminjasafnsis sýndi Gísli abstraksjónir úr landslagi. Það tímabil stóð til 1970, en við tók alllangt tímabil með fígúratífri útfærslu. Myndirnar urðu þá frásagnarlegs eðlis, efniviðurinn sóttur í þjóðsögur og síðar í ljóð. Á sýningu Gísla á Kjarvalsstöðum 1982 voru einvörðingu málverk sem byggð voru á ljóðum. Og í Sólarljóð sótti hann myndefni í stóra myndröð sem hann sýndi á Kjarvalsstöðum 1990. Segja má að málverk Gísla frá 10. áratugnum hafi verið hugmyndalist, færð í skáldlegan búning.

En á árinu 1998 urðu enn tímamót þegar Gísli hvarf aftur að landslagsmálverki. Þar hefur hann einvörðungu unnið úr því landslagi sem hann þekkir bezt, hálendinu ofan Biskupstungna og inn á Kjöl. Fyrir utan frjálsa myndsköpun hefur Gísli unnið sem blaða- og bókateiknari og málað mörg portret, þar á meðal af Vali Arnþórssyni bankastjóra fyrir Landsbanka Íslands, Gunnari Möller fyrir Frímúrarahöllina, Agli Thorarensen fyrir Mjólkurbú Flóamanna og Sigurði Greipssyni fyrir Héraðssambandið Skarphéðin. Myndir eftir hann eru í eigu Listasafns Reykjavíkurborgar, Listasafns Hafnarborgar í Hafnarfirði, einkasafns Þorvalds Guðmundssonar og Listasafns Árnesinga.

SÝNINGAR
Gísli Sigurðsson hefur haldið 12 einkasýningar og tekið þátt í mörgum samsýningum. Stærstu þrjár sýningrnar voru á Kjarvalsstöðum 1982, 1986 og 1990. Áður hafði hann sýnt tvívegis í Norræna Húsinu, 1972 og 1978 og í Bogasal Þjóðminjasafnsins 1967. Árið 1966 sýndi hann í Alwin Gallery í London, en 1980 á Akureyri og 1976 á Selfossi. Haustið 1999 var honum boðið aðsýna í Listasafni Árnesinga á Selfossi og þar sýndi hann myndirnar af hálendinu sem áður er getið.


Sæluhús í Fremstaveri. Olía og collage á plexigler, 80 x 70 cm, 1999. Til sölu.


Snemma vors á Kjalvegi. Olía og collage á plexigler, 80 x 70 cm, 1999. Til sölu.


Leysing. Olía á léreft, 80 x 80 cm. Til sölu.

Olíumálverk eftir Gísla Sigurðsson. Til sölu.

Olíumálverk eftir Gísla Sigurðsson. Í einkaeigu.

· Agriculture · Commerce & Services · Culture & Arts · Education · Entertainment ·
· Fisheries · Health · Industries · News & Media · Public Authorities ·
· Recreation & Sports · Shopping · Shipping & Transport · Tourism ·

· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·

Copyright © randburg.com - All rights reserved.

Randburg Is Your Path to The Future of Information