|
Guðmundur Runólfsson hf. Sólvöllum 2 IS - 350 Grundarfjörður Sími 430 3503 Fax 430 3501 |
German English French |
|
|
Saga félagsins Uppruna félagsins má rekja aftur til ársins 1947 þegar Guðmundur Runólfsson lét byggja fyrir sig trébát, Runólfur SH-135, á Norðfirði. Félagið Guðmundur Runólfsson hf. var stofnað hinn 18. desember 1974. Starfsemi félagsins í upphafi var útgerð og rekstur netaverkstæðis. Bolfiskvinnsla og útgerð er meginstarfsemi fyrirtækisins. Starfsemi félagsins Félagið gerir út þrjá togara; Hring SH-535, Ingimund SH 335 og Helgi SH-135. Helstu fisktegundirnar eru þorskur, ýsa, ufsi, karfi, steinbítur og flatfiskur. Þorski, ýsu, ufsa og karfa verður að mestu verið landað til vinnslu í bolfiskvinnslu félagsins en aðrar fisktegundir verða seldar á markaði eða fluttar út í gámum. Netagerð Guðmundur Runólfsson hf. rekur mjög vel búið netaverkstæði þar sem þrír menn starfa. Aðalstarfsemi netaverkstæðisins er þjónusta við eigin skip og önnur skip og báta sem gerð eru út frá Breiðafjarðarsvæðinu. Önnur þjónusta er sala á vírum, keðjum, lásum og ýmsum öðrum hlutum sem snúa að veiðarfærum og veiðarfæragerð. Einnig er þar búnaður til að taka á móti og gera við risaflottroll sem togaraflotinn notar við úthafskarfaveiðar. Bolfiskvinnsla Félagið starfrækir fiskvinnslu í Grundarfirði. Nánast eingöngu eru um að ræða framleiðslu á freðfiskafurðum og eru unnin 3.000 - 4.500. tonn á ári hverju. Að langmestu leyti er um vinnslu á eigin afla að ræða (u.þ.b. 73%). Unnið er að því um þessar mundir að kanna hagkvæmni ferskfiskvinnslu fyrir flug og saltfiskvinnslu. Markaðs- og sölumál Töluverð breyting hefur orðið á fyrirkomulagi fisksölumála s.l. ár. Stóru sölusamtökin, Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hf. og SÍF hf., hafa aukið bein kaup af framleiðendum og þ.a.l. hefur vægi umboðssölu með fiskafurðir í gegnum þessa aðila minnkað. Auk þess hefur félagið aukið sölu á afurðum til annara aðila. Slíkar áherslubreytingar breyta vissulega forsendum fiskvinnslufyrirtækja á borð við Guðmund Runólfsson hf. Stærsti markaður fyrir afurðir Guðmundar Runólfssonar hf. er í Bandaríkin, en á síðasta ári komu tæplega 50% af rekstrartekjum félagsins þaðan, aðallega vegna sölu á þorski og ýsu. Einnig fer hluti afurða til Bretlands, Þýskalands og Frakklands, sem myndar 16% af rekstrartekjum. Á undanförnum árum hefur félagið fylgst með þróun á einstökum mörkuðum og reynt að bregðast fljótt við breyttum markaðsaðstæðum. Helstu starfsmenn Guðmundur Smári Guðmundsson, E-mail Sveinn Pálmason, E-mail Móses Geirmundsson, E-mail Páll Guðmundsson, E-mail |
![]() ![]() ![]() ![]() ![]() |
· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·
Copyright © randburg.com - All rights reserved.