Snæfellsássamfélagið
- fyrsta samfélagið á Íslandi sem stofnað er með andlegum, vistvænum og sjálfbærum ásetningi


Tengiliður innan samfélagsins:
Sveinbjörg Eyvindsdóttir formaður samfélagsstjórnar
Sími 435 6880
Netfang
English
English


Snæfellsássamfélagið var formlega stofnað árið 1995 þegar fyrsta fjölskyldan settist að á Brekkubæ. Strax í upphafi voru samfélaginu settar reglur sem byggðu á vistvænum, andlegum og sjálfbærum grunni. Starfsemi innan samfélagsins fór hægt af stað, fólk var að þreifa sig áfram og leita leiða til að skapa sér afkomu við nýjar aðstæður. Miklar breytingar urðu í samfélaginu árið 1997 þegar fjórar fjölskyldur ákváðu að byggja sér þar lítil, vistvæn einbýlishús. Frá því má segja að verið hafi stöðug þróun í uppbyggingu samfélagsins og atvinnulífi fyrir samfélagsbúa. Nú er innan samfélagsins rekin ferðaskrifstofa, gistiheimili, tjaldstæði og útgáfufyrirtæki.
Sumarið 2000 gerðist Snæfellsássamfélagið aðili að Global Eco-Village Network sem er samtök vistvænna samfélaga í Evrópu.

Umhverfisstefna
Snæfellsássamfélagið hefur mótað sér ákveðna umhverfisstefnu sem er í fullu samræmi við Staðardagskrá 21. Þar er m.a. að finna eftirtalda liði:
  • Einungis eru notaðar umhverfisvænar sápur og hreinlætisvörur innan samfélagsins.
  • Gæta skal að því að vatnsnotkun og önnur orkueyðsla sé í lágmarki.
  • Ekki skal skilja bíla eftir í lausagangi inni á samfélagssvæðinu.
  • Allt sorp í samfélaginu er flokkað.
  • Unnið er að uppgræðslu mela á landi Brekkubæjar.
  • Unnið er að hreinsun á Hellnafjöru a.m.k. einu sinni á ári.
  • Samfélagið fylgir 5 ára áætlun um trjárækt á landi sínu.
  • Lögð er áhersla á að rækta lífrænt ræktað grænmeti.
  • Lögð er áhersla á að rækta lífrænt ræktaðar íslenskar lækningajurtir.
  • Unnið er að verndun og viðhaldi menningarminja á Hellnum
  • Unnið er að merkingu áhugaverðra staða á Hellnum.
  • Unnið er að því að safna frásögnum um staði og viðburði á Hellnum
Íbúar í Snæfellsássamfélaginu árið 2000

Guðlaugur Bergmann og Guðrún G. Bergmann, Sólbrekku, Guðlaugur eða Guðrún
Guðríður Hannesdóttir og Jóhann Þóroddsson, Skjólbrekku, Guðríður og Jóhann
Ketill Sigurjónsson og Sveinbjörg Eyvindsdóttir, Valabrekku, Ketill og Sveinbjörg

Samþykkt deiliskipulag er til fyrir frekari húsbyggingum í Snæfellsássamfélaginu og þar eru margar lausar lóðir. Núverandi samfélagsbúar taka opnum örmum á móti nýjum íbúum sem hafa áhuga á að spreyta sig á nýju samfélagsformi. Nánari upplýsingar veitir Guðlaugur Bergmann í síma 435 6810 eða á netfangi.

Forsíða Hellnavefsins - Ferðaskrifstofa Leiðarljóss - Áhugaverðir staðir á Hellnum
Gistiheimilið Brekkubær - Mannrækt undir Jökli
Leiðarljós ehf. - útgáfa - Snæfellsássamfélagið - Áhugaverðar krækjur

· Agriculture · Commerce & Services · Culture & Arts · Education · Entertainment ·
· Fisheries · Health · Industries · News & Media · Public Authorities ·
· Recreation & Sports · Shopping · Shipping & Transport · Tourism ·

· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·

Copyright © randburg.com. All rights reserved.

Randburg Is Your Path To The Future Of Information