Hitaveita Suðurnesja hf.
Brekkustíg 36
260 Reykjanesbær

Sími 422 5200
Fax 421 4727

E-mail


English
English

Hitaveita Suðurnesja

Hitaveita Suðurnesja hf. er sameignarfyrirtæki sveitarfélaganna á Suðurnesjum, Hafnarfjarðarbæjar og ríkissjóðs. Tilgangur Hitaveitu Suðurnesja hf. er vinnsla og nýting jarðvarma og hvers konar annarra orkuauðlinda, dreifing og sala raforku, orkugjafa og annarra afurða félagsins ásamt hverri þeirri starfsemi annarri sem nýtt getur rannsóknir, þekkingu eða búnað félagsins. Einnig iðnþróun og nýsköpun af hverju tagi sem er ásamt annarri viðskipta- og fjármálastarfsemi samkvæmt ákvörðun stjórnar hverju sinni.

Hitaveita Suðurnesja

Suðurnes - útivistarstaður framtíðarinnar
Hvað er markvert að skoða á Suðurnesjunum? Það sem vert er að benda viljugu ferðafólki á eru t.d. fornar þjóðleiðir, áhugaverð göngusvæði og ýmsir aðrir forvitnilegir útivistarmöguleikar, sérstök útivistarsvæði sem bera af til jarðfræðikennslu og fuglaskoðunar, góð afþreying, svo sem hestaferðir, skoðunarferðir á landi og sjó, t.d. hvalaskoðunarferðir, og sjóstangaveiði, sem hentað gæti vönum sem óvönum, og er þá litið á fugla og horft eftir hvölum í leiðinni. Silungsveiði í Seltjörn er skemmtileg afþreying. Að öllu þessu afloknu er alltaf tilhlýðilegt að fá sér hvíld og endurnæringu í Bláa lóninu.

Eldborg
Í "Gjánni" hefur verið komið upp sýningu um jarðfræði, jarðhita og vinnslu orku úr iðrum jarðar. Tæknibúnaður þar er mjög fullkominn og gjáin hljóðdeyfð þannig að unnt er sýna margar myndir og spila mismunandi hljóð samtímis. Myndskjáir eru 42" plasmaskjáir í stærðarhlutfallinu 16:9 sem er hið nýja form fyrir sjónvarpsmyndir. Á myndskjánum eru sýndar tölvumyndir og kvikmyndir. Víðóms hljóðflutningur er með hverri mynd. Þar sem er þulartexti er hann bæði á íslensku og ensku.
Hljóðkerfi með stafrænum mögnurum er einnig í sjálfri gjánni og nýtist það m.a. fyrir ýmis hljóð sem tengjast gossprungu og jarðskjálftalíkani sem þar er komið fyrir. Þessi hljóð, auk annarra íslenskra náttúruhljóða, eru geymd á stafrænum hljóðspilurum sem stýrt er í samræmi við það sem er að gerast í gjánni á hverjum tíma.
Hitaveita Suðurnesja

Jarðhitavökvinn
Hitaveita Suðurnesja rekur orkuver í Svartsengi sem nýtir um 240 °C heitan jarðhitavökva, sem fenginn er úr borholum allt að 2000 metra djúpum. Jarðhitavökvann er ekki unnt að nota til beinnar upphitunar vegna seltu hans og því hversu ríkur hann er af uppleystum steinefnum. Vökvinn er því notaður til upphitunar á ferskvatni og til framleiðslu á rafmagni. Jarðhitavökvi um 80 °C heitur sem ekki er nýttur í orkuverinu er hleypt út á hraunbreiðuna. Jarðhitavökvi blandaður þéttivatni háhitagufunnar myndar Bláa lónið. Einstakt lífríki ásamt miklu magni af náttúrulegum steinefnum, kísl og sérstökum blágrænum þörungi mynda mjúkan hvítan leirinn í lóninu og gefa því sinn sérstaka bláa lit. Bláa Lónið hf. rekur baðstaðinn við Bláa lónið, göngudeild fyrir psoriasis sjúklinga og framleiðir húðverndarvörur undir merkinu Blue Lagoon.

Hitaveita Suðurnesja

Bláa Lónið
line

· Agriculture · Commerce & Services · Culture & Arts · Education · Entertainment ·
· Fisheries · Health · Industries · News & Media · Public Authorities ·
· Recreation & Sports · Shopping · Shipping & Transport · Tourism ·

· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·

Copyright © randburg.com. All rights reserved.

Randburg Is Your Path to The Future of Information