Randburg.com -> Iceland -> Tourism -> Accommodation
Hótel Keflavík
Vatnsnesvegur 12
230 Keflavík

Sími 420 7000
Fax 420 7002

E-mail
Meiri upplýsingar
Staðsetning
Hotel Keflavik



English

Germany

France

Italian

Danish

Hotel Keflavik er fyrsta flokks hótel í miðbæ Keflavíkur. Það er kærkominn dvalarstaður fyrir þá sem vilja hvílast vel áður en haldið er af stað til annarra landa. Þaðan er aðeins um fimm mínútna akstur að flugstöð Leifs Eiríkssonar og tuttugu mínútur til höfuðborgarinnar. Boðið er upp á akstur að flugstöð og bílageymslu innanhúss á endurgjalds.

Ráðstefnuhald og árshátíðir fyrirtækja hafa aukist jafnt og þétt enda aðstaða öll hin besta og afþreying í miklu úrvali en áhersla hefur verið lögð á að veita góða og persónulega þjónustu í hvívetna. Hótelið er rétti staðurinn fyrir árshátíðir, fundi og aðra slíka mannfagnaði. Hægt er að velja milli salarkynna Sólsetursins, Café Iðnó eða fundarsals á fyrstu hæð hótelsins auk minni herbergja allt eftir þörfum hverju sinni.

Veitingastaðurinn Sólsetrið er einn sá glæsilegasti í Keflavík.

Góður og næringaríkur morgunverður býðst milli klukkan 06:00 og 10:00.

Café Iðnó býður upp á ljúfa stemmningu í fallegu umhverfi. Staðurinn er allt í senn kaffihús, veitingastaður og bar.

Aðbúnaðurinn á hótelherbergjum er einn sá besti hér á landi en á hverju herbergi er meðal annars 14 rása sjónvarpskerfi, smábar, sími, peningaskápur, buxnapressa, grill og tölvutengi. Einnig eru nuddbaðkör á nokkrum herbergjum.

Aðgangur að fullútbúinni líkamsræktarstöð hótelsins, Lífsstíl er frítt fyrir hótelgesti, um er að ræða stóran æfingasal, erobik og spinning auk annarra aðstöðu, s.s. ljósabekkja, nudd, sauna og heitar pottar. Gestir hafa einnig aðgang að tölvu sem þeir geta notað að vild.

Hótel Keflavík er í nánu samstarfi við hópferðafyrirtæki sem býður gestum rútuþjónusu víðs vegar um landið.

Við nágrenni hótelsins er hægt að nýta sér möguleika á borð við hesta- og hvalaskoðunarferðir. Ýmis söfn eru víðsvegar í bænum, bæði menningar- og náttúrfræðisöfn auk safna af öðrum toga.

Áhugafólk við íþróttaiðkanir ætti ekki að verða uppiskroppa með val þar sem fjölbreytt íþrótta- og tómstundagaman býðst í Keflavík.

Bláa lónið er ekki langt frá hótelinu (15 mín. akstur) þar sem fólk getur kynnst íslensku baðstrandarveðri í heilsusamlegu og óspilltu umhverfi.

Hótelið er skipað hæfu og framúrskarandi starfsfólki sem er reiðubúið að taka tillit til væntinga hótelgesta og gefa þeim kost á að slaka á og láta sér líða vel.

Hótel Keflavík

Hótel Keflavík

Hótel Keflavík

Hótel Keflavík
line

· Agriculture · Commerce & Services · Culture & Arts · Education · Entertainment ·
· Fisheries · Health · Industries · News & Media · Public Authorities ·
· Recreation & Sports · Shopping · Shipping & Transport · Tourism ·

· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·

Copyright © randburg.com. All rights reserved.

Randburg Is Your Path to The Future of Information