![]() |
|
![]()
Nánari upplýsingar um bókina
| Kostur þessarar bókar er m.a. sá að hægt er að ferðast eftir henni í báðar áttir eftir hverjum vegi. Lýsing bókarinnar hefst á Hringveginum við Reykjavík og haldið er sólarsinnis vestur, norður, austur og suður um land, þar til aftur er komið til Reykjavíkur um Suðurlandsveg. Það kann að koma þér spánskt fyrir sjónir að þú verður í þessu tilviki að lesa textann upp síðuna en ekki niður eins og þú ert vanur. Þetta á sér eðlilega skýringar sem blasir við og venst strax. Að sjálfsögðu er alveg eins hægt að fara Hringveginn rangsælis frá Reykjavík. Þá hæfir þú ferðina við Rauðavatn á bls. 152. Í því tilviki læsir þú textann niður síðuna en brygðir svo út af vananum og færir af bls. 152 á bls. 151 og þannig koll af kolli aftur á bak þar til þú kemur aftur til Reykjavíkur. Bæjarkort eru af öllum helstu þéttbýlisstöðum á landinu og á þeim er að finna merkingar sem segja til um margs konar þjónustu þeirra sem í bókinni auglýsa. Nafnaskrár eru aftast í bókinni. Þær auðvelda mjög notkun hennar, t.d. ef fólk man ekki svipinn hvar einhver staður er á landinu eða það vill ganga beint að upplýsingum um tiltekinn mann eða veru. Bókin er fáanleg á ensku, þýsku og íslensku. Um er að ræða kilju í stærðinni: 160 x 234 mm, 516 blaðsíður |
· Home · Search · About Randburg · What's New ·
Copyright © randburg.com - All rights reserved.