Randburg.com -> Iceland -> Tourism -> Restaurants
JT veitingar
Hótel Loftleiðir
101 Reykjavík

Sími 562 7575
Fax 562 7573

E-mail
Hótel Loftleiðir



Germany
German


English
English

JT Veitingar

Hótel Loftleiðir
Lónið
Veitingasalurinn Lónið er vinsæll matsölustaður hjá almenningi og gestum hótels Loftleiða. Auk A La Carte seðils býður hann glæsilegt hlaðborð í hádeginu og á kvöldin og morgunverðar- og kaffihlaðborð. Ósjaldan sameina kaupsýslumenn viðskiptafund og góða máltíð í Lóninu. Salarkynni og aðstaða voru nýverið endurbætt glæsilega.

Víkingasalur
Í tæplega 40 ár hefur Víkingasalur Hótels Loftleiða verið vettvangur mannfagnaðar við margvíslegustu tækifæri. Salurinn er þannig hannaður að hægt er að þjóna allt frá litlum hópum að 800 manns.

Árvissir atburðir
Hefð er fyrir ýmsum þematengdum uppákomum á Hótel Loftleiðum sem njóta sífellt vaxandi vinsælda, svo mjög að fullbókað er á suma viðburði mörgum mánuðum áður en að þeim kemur. Nefna má villibráðarveislur Loftleiða sem dæmi, skötuhlaðborð og jólahlaðborðið með hinni þekktu Idu Davidsen, smurbrauðsdrottningu Dana, sem eru árvissar skemmtanir fjölmargra fjölskyldna og fyrirtækja. Nýjustu viðburðirnir, s.s. lambakjötsdagar og suðrænar saltfiskveislur, hafa einnig hitt í mark.

Villibráðarkvöld dagana 12. október til 11. nóvember.
Jólahlaðborð dagana 16. nóvember til 22. desember.
Lambadagar mars.
Saltfiskdagar mars.
Páskadagar mars.

Snitturveisla

Veisluþjónusta við öll tækifæri
Við hjá JT veitingum á Hótel Loftleiðum leggjum metnað okkar í að veita bestu þjónustu sem hugsast getur og gerum strangar gæðakröfur um hráefni og matseld.

afmælisveislur

Kokkteilboð - afmæli
Við gerum tilboð í kokkteilboð af öllum stærðum og af hvaða tilefni sem er: Afmæli, fundarlok, fyrirtækjateiti, sýningar o.m.fl.
Giftingarveislur

Brúðkaup
Við sérhæfum okkur í brúðkaupsveislum. Í boði er kokkteilmatur, kaffihlaðborð, kvöldverður og lúxusherbergi á hótelinu ásamt allri þeirri þjónustu sem þarf til að gera þessa einstöku stund eins og hún á að vera: Ógleymanlega!

Erfidrykkjur
Við hjá JT veitingum leggjum okkur fram um að skapa hlýlegt en virðulegt andrúmsloft fyrir erfidrykkjur. Við bjóðum upp á smekklegt og vandað erfidrykkjuhlaðborð með úrvali brauðrétta, kökum og tertum.

Endurfundir
Langar þig til að hóa saman gömlu bekkjarfélögunum? Saumaklúbbnum síkáta? Eða leikfélögunum úr götunni heima? Á Hótel Loftleiðum er allt til alls í því sambandi og við hjá JT veitingum gerum sérstakt endurfunda-tilboð á föstudögum.

Ráðstefnuhald í Reykjavík

Ráðstefnur, fundir, vörukynningar o.fl.
Hótel Loftleiðir bjóða upp á vel útbúna funda- og ráðstefnusali fyrir jafnt smáa sem stóra atburði. Ráðstefnuþjónar og tæknimenn sjá um að sinna þeim verkefnum sem þarf svo að samkoman fari sem best fram. Ráðstefnusalirnir eru með útbúnað, tækni og þjónustu við allra hæfi.

Veitingaþjónusta

JT veitingar
JT veitingar tóku við rekstri veitingasala Hótels Loftleiða haustið 2000.

Veitingamennirnir
Jón Ögmundsson og Trausti Víglundsson reka fyrirtækið. Báðir hafa áratuga reynslu af veitingastörfum og rekstri á því sviði. Jón er framkvæmdastjóri. Hann starfaði áður sem veitingastjóri á Hótel Esju og Hótel Loftleiðum, þar sem hann hefur einnig verið ráðstefnustjóri. Trausti er yfirveitingastjóri á Hótel Loftleiðum. Hann starfaði um áratugaskeið á Hótel Sögu, m.a. sem veitingastjóri.

· Agriculture · Commerce & Services · Culture & Arts · Education · Entertainment ·
· Fisheries · Health · Industries · News & Media · Public Authorities ·
· Recreation & Sports · Shopping · Shipping & Transport · Tourism ·

· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·

Copyright © randburg.com - All rights reserved.

Randburg Is Your Path to The Future of Information