![]() ![]() ![]()
|
| Randburg.com -> Iceland -> Tourism -> Restaurants |
|
Höllin/Karató ehf. Strembugötu 13 900 Vestamannaeyjar Sími 481 2665 Fax 481 2330 |
English German |
![]() |
|
Veislu- og ráðstefnuhúsið í Löngulág Höllin, veislu- og ráðstefnuhús er staðsett í einstakri náttúrufegurð Vestmannaeyja. Í höllinni er frábær aðstaða fyrir hvers konar móttökur og mannfagnaði og fullkomin aðstaða til funda- og ráðstefnuhalds. Ráðstefnuhús Það er okkar trú að fallegt og rólegt umhverfi virki hvetjandi á ráðstefnu- og fundargesti víða að úr heiminum. Ráðstefnu- og fundaraðstaða Hallarinnar er opin ásamt úrvals þjónustu. Góð aðstaða örvar framkvæmdargleði þátttakenda og skilar betri árangri. Aðstoð er boðin við undirbúning og skipulagningu á dagskrá, flutningi og gistingu fyrir þáttakendur. Í Höllinni eru þrír misstórir salir, sá stærsti rúmar 550 manns í sæti, á efri hæð Hallarinnar er salur sem getur rúmað 80 manns. Höllin hefur einnig til umráða veitingastað á Hótel Þórshamri og rúmar hann um 100 manns í sæti. Fundarherbergi er á neðri hæð fyrir allt að 25 manns. Skemmtanir Reglulega eru haldnar skemmtanir og dansleikir í Höllinni. Allar helstu stórhljómsveitir Íslands hafa komið og skemmt í Höllinni. Þar er kjörin aðstaða til tónleikahalds og hefur verið vel sótt. Vestmannaeyingar og aðrir gestir kunna vel við sig í þessu nýja og fallega húsi. Hvers vegna ekki að breyta til og skella sér til Eyja og halda upp á árshátíðina þar. Vestmannaeyjar hafa upp á fjölmargt að bjóða og með því að koma til Vestmannaeyja og halda upp á árshátíðina hjá þínu fyrirtæki, félagi eða skóla í Höllinni þá gefst tækifæri til þess að þjappa hópinn betur saman efla starfsandann. Við bjóðum upp á góðan mat og þjónustu auk þess sem þið fáið að njóta náttúru Eyjanna. Stórir hópar geta fengið Höllina útaf fyrir sig, 300 - 550 manns en ef smærri hópar vilja vera útaf fyrir sig þá geta þeir verið á veitingastað okkar á Hótel Þórshamri sem tekur allt að 100 manns. ![]() |
![]() Veisluþjónusta Höllin starfrækir veisluþjónustu sem sér um að halda hverskonar veislur í glæsilegum húsakynnum sínum eða annars staðar í Vestmannaeyjum. Starfsmenn Hallarinnar hafa langa reynslu af því að halda veislur í Vestmannaeyjum. Þær hafa verið haldnar víðsvegar um bæinn eða úti í náttúru Heimaeyjar og jafnvel í úteyjunum, auk þess sem að boðið er upp á góðar aðstæður í húsakynnum okkar í Höllinni eða á veitingastað á Hótel Þórshamri. Við heitum því að halda eftirminnilega veislu fyrir þig hvert sem tilefnið er.
Starfsfólk Hallarinnar er ávallt reiðubúið til þess að aðstoða þig við skipulagningu og undirbúning ráðstefnu eða veisluhalda. Hvort sem um er að ræða litla fundi, stórar ráðstefnur, fermingarveislur, brúðkaup, árshátíðir, afmæli, hanastél, fermingar, erfidrykkjur, skírnarveislur, móttökur, útskriftarveislur, þorraveislur, jólahlaðborð, þemaböll, starfsmannaskemmtanir, fundir, námskeið, sem og önnur einkasamkvæmi, þá gerum við allt til þess að tilefnið heppnist sem best.
|
· Agriculture · Commerce & Services · Culture & Arts · Education · Entertainment ·
· Fisheries · Health · Industries
· News & Media · Public Authorities ·
·
Recreation &
Sports · Shopping ·
Shipping &
Transport · Tourism
·
· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·
Copyright © randburg.com. All rights reserved.