Lífeyrissjóður Suðurnesja
Tjarnargata 12-14
230 Reykjanesbær

Sími 421 6666
Fax 421 6664

E-mail





English
English



Lífeyrissjóður Suðurnesja


Lífeyrissjóður Suðurnesja var stofnaður árið 1970 og voru stofnaðilar helstu stéttarfélögin á Suðurnesjum ásamt Vinnuveitendasambandi Íslands. Síðan um áramótin 1999-2000 sameinaðist Lífeyrissjóður verkafólks í Grindavík sjóðnum.

Lífeyrissjóður Suðurnesja

Lífeyrissjóður Suðurnesja tryggir sjóðfélögum sínum ellilífeyrir til æviloka. Auk þess örorkulífeyrir vegna lengri eða skemmri örorku, makalífeyrir vegna andláts maka og barnalífeyrir.

Verulegur hluti af starfsemi lífeyrissjóðsins er ráðgjöf og lánveitingar til sjóðfélaga. Í samvinnu við Sparisjóðinn í Keflavík hefur sjóðurinn aukið ráðgjöf verulega í gegnum greiðsluþjónustu og hefur verið reynt að aðstoða sjóðfélaga á ýmsan hátt til að auka greiðsluhæfni og við stjórn eigin fjármála. Við lánveitingar eru tengsl starfsmanna lífeyrissjóðsins mikil við sjóðfélaga og þannig öðlast starfsfólk lífeyrissjóðsins smá innsýn í þarfir þeirra og kröfur.

Lífeyrissjóður Suðurnesja

Sjóðfélagar 16 til 70 ára greiða 4% af öllum launum sínum til sjóðsins og atvinnurekendur síðan mótframlag eða 6%. Lífeyrisgreiðslur eru síðan mismunandi eftir því hve hátt iðgjald hefur verið greitt til sjóðsins. Iðgjöld sjóðfélaga fyrir hvert ár eru síðan umreiknuð í stig sem notuð eru til viðmiðunar um réttindi sjóðfélaga.

Yfirlit yfir móttekin iðgjöld eru send sjóðfélögum tvisvar á ári og þurfa sjóðfélagar að gera athugasemdir við yfirlitið innan 60 daga frá útsendingardegi ef vanhöld sýnast á iðgjaldaskilum. Sjóðfélagar þurfa í ríkari mæli að fylgjast með iðgjaldagreiðslum og skoða vel launaseðla.

Lífeyrissjóður Suðurnesja

Á undanförnum árum hafa orðið viss tímamót í umræðunni um stöðu lífeyrissjóða hér á landi. Kröfur um hagræðingu og betri ávöxtun hjá sjóðunum hafa aukist og sameining lífeyrissjóða er oftar í umræðunni en áður.

Það er mat stjórnar Lífeyrissjóðs Suðurnesja að stefna beri að því að auka mátt sjóðsins með öllum tiltækum ráðum í því skyni að auka hagræðingu, bæta þjónustuna við sjóðfélaga og ekki síst að stefna að faglegri vinnubrögðum í því skyni að auka ávöxtun og minnka áhættu.
line

· Agriculture · Commerce & Services · Culture & Arts · Education · Entertainment ·
· Fisheries · Health · Industries · News & Media · Public Authorities ·
· Recreation & Sports · Shopping · Shipping & Transport · Tourism ·

· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·

Copyright © randburg.com. All rights reserved.

Randburg Is Your Path to The Future of Information