![]() ![]() ![]()
Randburg.com ->
Iceland -> Tourism ->
Accommodation ->
Hotels
|
| Sel-Hótel
Mývatn Skútustaðir IS - 660 Mývatn Iceland Tel. + 354 464 4164 Fax + 354 464 4364 |
English German Japanese |
|
Sel-Hótel Mývatn á Skútustöðum Mývatnssveit er kjörinn staður fyrir gönguskíðaferðir, rómantíska vetrardvöl, þorrablótið og árshátíðina! Sel-Hótel Mývatn á Skútustöðum er nýbyggt, glæsilegt þriggja stjörnu hótel í nágrenni við einstakar náttúruperlur við Mývatn. Á hótelinu eru 35 herbergi (29 dbl og 6 sgl), búin húsgögnum úr gegnheilum Mahognany viði, sérinnflutt frá Indónesíu. Hótelið er á þremur hæðum með lyftu. Einnig höfum við sérhannað herbergi fyrir fatlaða. Veitingasalir eru fyrir 80-150 manns með fjölbreyttan matseðil, allt frá skyndibitafæði upp í veislumáltíð. Út frá hótelinu eru góðar gönguleiðir hvort sem er skíðum eða tveimur jafnfljótum. Við Kröflu er nýtt skíðasvæði með skíðalyftu og nægum snjó. Hótelið hefur sérhæft sig í að sinna þörfum einstaklingsins með fjölbreytta möguleika á afþreygingu allt frá gönguferðum upp í go-kart akstur á ís og vélsleðaferðum. Einnig er möguleiki á stærri samkomusal fyrir viðameiri viðburði í félagsheimilinu Skjólbrekku, sem er einungis í 300 metra fjarlægð. Verslun og bensínstöð eru á staðnum og sundlaug í nágrenninu. Einnig Mývatnssafn sem er sögusafn Mývatnssveitar og sýnir sögu Mývetninga í máli og myndum. Á Skútustöðum er einnig kirkja frá 1863, unnin úr norskum viði. Ýmis önnur afþreying er í boði sem Sel-Hótel Mývatn og Sportferðir vinna saman að, s.s. vélsleðaleiga, go-kart leiga, skíða og skautaleiga, dorg og útsýnisferðir, jafnt fyrir smærri sem stærri hópa. Endilega hafið samband og biðjið um nánari upplýsingar og verðtilboð . |
|
·
Agriculture ·
Commerce & Services ·
Culture & Arts ·
Education ·
Entertainment ·
· Fisheries ·
Health ·
Industries ·
News & Media ·
Public Authorities ·
· Recreation & Sports ·
Shopping ·
Shipping & Transport ·
Tourism ·
· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·
Copyright © randburg.com. All rights reserved.