|
Orkuveita Reykjavíkur Suðurlandsbraut 34 108 Reykjavík Sími 585 6000 Fax 581 4485 Rafpóstur Heimasíðan okkar |
![]()
|
|
Orkuveita Reykjavíkur er sjálfstætt þjónustufyrirtæki í eigu Reykjavíkurborgar, Garðabæjar, Hafnarfjarðarbæjar, Akranesbæjar, Borgarbyggðar og Borgarfjarðarsveitar. Orkuveitan dreifir rafmagni, heitu vatni til húshitunar, köldu vatni til neyslu og brunavarna á þjónustusvæði sínu og kappkostar að veita viðskiptavinum sínum sem besta mögulega þjónustu. Orkuveitan vinnur jarðvarma beint úr jörðu í Mosfellsbæ og Reykjavík, en einnig jarðgufu í Nesjavallavirkjun.
![]() Við framleiðum orku.
Orkuveita Reykjavíkur aflar og dreifir vistvænni orku á sem hagkvæmastan hátt í sátt við umhverfið. Starfsemi fyrirtækisins tekur mið af skynsamlegri nýtingu orkulinda í samræmi við lög og reglur um umhverfismat. Orkuveita Reykjavíkur er til fyrirmyndar í umgengni á eigin umráðasvæðum og vinnur þar að uppgræðslu lands og friðun dýralífs. Stefna Orkuveitunnar er að sjá viðskiptavinum sínum fyir ódýrri vistvænni orku sem framleidd er á hagkvæman hátt úr endurnýjanlegum íslenskum orkulindum. Þannig mun fyrirtækið stuðla að aukinni notkun hreinnar innlendrar orku og um leið leggja sitt að mörkum til framfara í landinu.
![]() Nesjavellir, stærsta jarðhitaorkuver Íslands.
Orkuveita Reykjavíkur vinnur í sátt við náttúruna á öllum sviðum. Stuðlað er að góðri nýtingu náttúruauðlinda, fegrun lands og umhverfis.
Lögð er áhersla á: |
![]() Strókur og Perlan.
Vatn er undirstaða alls lífs og nú á dögum hafa íbúar Reykjavíkur greiðan aðgang að hreinu neysluvatni, þó að sú hafi ekki ávallt verið raunin. Helsta vatnstökusvæði Orkuveitunnar er í Heiðmörk, í svonefndum Gvendarbrunnum sem kenndir eru við Guðmund góða Arason biskup, en einnig eru brunnar á Jaðarsvæði, Myllulækjarsvæði og í Vatnsendakrika.
![]() Perla Reykjavíkur.
Eitt vinsælasta útivistarsvæði Reykvíkinga er Elliðaárdalurinn. Daglega njóta hundruð Reykvíkinga útivistar í dalnum og ekki þarf lengi að fara þar um til þess að sjá fólk á ferli um dalinn þveran og endilangan enda er vel búið að útivistarfólki, stígar og brautir fyrir gangandi og hjólandi umferð. Elliðaárnar hafa oft verið nefndar perla Reykjavíkur, enda einstakt að laxveiðiá renni í gegnum höfuðborg. Reykjavíkurborg keypti Elliðaárnar árið 1906, ekki til laxveiða heldur beislunar vatnsafls og rafstöðin var reist um 1920. Um það leyti hefur líklega hafist trjárækt í Elliðaárdalnum en árið 1951 hóf Rafmagnsveita Reykjavíkur skógræktar- og uppgræðslustarf í árhólmanum, sem er eitt mesta aðdráttarafl dalsins. Fuglalíf er fjölskrúðugt í Elliðaárdal og þar hafa einnig fundist fornminjar, m.a. frá tíð Innréttinganna.
![]() Gestir eru velkomnir. Hengill er 803 m hár fjallshryggur, að mestu úr móbergi en einnig er í honum grágrýti og líparít. Hengilssvæðið er einkar vinsælt á veturna til skíðaiðkana og útivistar, en þeim fer fjölgandi sem nýta sér svæðið einnig til útivistar á öðrum árstímum. Hengilsvæðið er mikið jarðhitasvæði og ferðafólk hrífst þar af stórbrotnu landslagi - heitum hverum, hraungígum, ám og vötnum og gróðursælum blettum. |
· Agriculture · Commerce & Services · Culture & Arts · Education · Entertainment ·
· Fisheries · Health · Industries
· News & Media · Public Authorities ·
·
Recreation &
Sports · Shopping ·
Shipping &
Transport · Tourism
·
· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·
Copyright © randburg.com. All rights reserved.