|
Pökkun og flutningar sf. Propack Smiðshöfði 1 110 Reykjavík Sími 587 9700 Fax 587 9705 |
|
|
milli landa. Það er góð tilfinning að geta treyst fagfólki fyrir búslóðaflutningi milli landa. Við komum og pökkum búslóðinni þinni, flytjum hana á áfangastað, önnumst tollafgreiðslu og tryggingar og pökkum svo upp fyrir þig á nýju heimili. Ef nýja húsnæðið er ekki alveg tilbúið, bjóðum við jafnframt búslóðageymslu og þétt riðið net umboðsmanna okkar um heim allan tryggir fyrirhafnarlausan flutning hvert sem er. Pökkun og flutningar sf. - Propack, sérhæfir sig í pökkun og frágangi á búslóðum til flutnings milli landa, en einnig milli húsa eða landshluta. Þegar viðskiptavinur óskar eftir þjónustu okkar sendum við fulltrúa á staðinn til að skoða búslóðina og áætla rúmmál o.s.frv. Auk þess er kannað hverjar þarfir viðskiptavinarins eru varðandi flutninginn, er t.d. um að ræða dýrmæt málverk, píanó eða aðra álíka hluti sem þarfnast sérpökkunar, þá önnumst við það. Í framhaldi af skoðun sendum við tilboð til viðkomandi. Við önnumst allan frágang varðandi flutningskjöl, tollamál og tryggingar. Pökkun og Flutningar sf. - Propack hafa víðtæka reynslu varðandi flutninga fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir. Leitið tilboða. |
![]()
|
· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·
Copyright © randburg.com - All rights reserved.