| Randburg.com -> Iceland -> Tourism -> Hotels -> Reykjavik |
|
Radisson BLU Hótel Saga Sími + 354 525 9900 |
|
Fjögurra stjörnu hótel sem hefur í áratugi verið eitt af flaggskipum íslenskra hótela. Umhverfið er rólegt, enda stutt í Þjóðminjasafnið, Þjóðarbókhlöðuna og Háskóla Íslands, en það tekur samt ekki nema nokkrar mínútur að rölta meðfram Tjörninni í fjörið í miðbænum. Stutt er í Reykjavíkurflugvöll og allar helstu strætóleiðir borgarinnar. Á Radisson BLU Hótel Sögu eru fyrsta flokks herbergi, veislusalir, verslanir og tveir veitingastaðir, Skrúður og Grillið. Hinn fyrrnefndi er þekktur fyrir lifandi stemmningu, hádegishlaðborð í miðri viku og „brunch“ um helgar og gleður bragðlaukana með fjölbreyttum brasserie-matseðli. Um Grillið á Hótel Sögu þarf tæpast að fjölyrða – það hefur í áratugi haldið sessi sínum sem einn glæsilegasti veitingastaður landsins og útsýnið af áttundu hæðinni er óviðjafnanlegt. Viðskiptaferðalangar hafa ávallt hrifist af Radisson BLU Hótel Sögu, enda er funda- og ráðstefnuaðstaða fyrsta flokks, nettenging og skrifborð fylgja öllum herbergjum og öll þægindi við höndina. Að loknum erfiðum vinnudegi má slaka á í spa-inu, taka á í líkamsræktinni eða kæla sig niður með drykk á Mímisbar. |
|
· Agriculture
· Commerce & Services ·
Culture & Arts ·
Education ·
Entertainment ·
· Fisheries ·
Health ·
Industries ·
News & Media ·
Public Authorities ·
· Recreation & Sports ·
Shopping ·
Shipping & Transport ·
Tourism ·
· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·
Copyright © randburg.com - All rights reserved.