Randburg.com -> Iceland -> Tourism -> Hotels -> Reykjavik

Park Inn Ísland
Armuli 9
108 Reykjavík
Ísland

Tel. + 354 595 7000
Fax + 354 595 7001

Póstfang

EnglishEnglish


Á Park Inn Ísland færðu þægilega gistingu í rúmgóðum og notalegum herbergjum á góðu verði. Gestir í viðskiptaerindum, hópar og fjölskyldur finna hér allir eitthvað við sitt hæfi, en hótelið er staðsett innan um verslanir, fyrirtæki og veitingastaði steinsnar frá Laugardalnum. Þar má nálgast fjölbreytta afþreyingu – Húsdýragarðinn, Laugardalslaugina (gestir Park Inn Íslands fá frían aðgang í allar sundlaugar borgarinnar), Grasagarðinn og fullkomnar líkamsræktarstöðvar. Miðbær Reykjavíkur með veitingahúsum, kaffihúsum, verslunum og galleríum er í göngufæri. Auðvelt er að komast að hótelinu, hvort heldur er á bíl, með strætisvögnum eða fótgangandi.

Hótelherbergin eru björt, litrík og rúmgóð með aðgangi að þráðlausu Interneti og ýmsum þægindum. Sérvalin herbergi hafa verið útbúin með þarfir fatlaðra gesta í huga.

Vel útbúin funda- og ráðstefnuaðstaða getur hýst allt að 100 gesti en einnig er hægt að skipta ráðstefnuherbergjum niður þannig að henti fyrir smærri hópa. Starfsfólk hótelsins sér til þess að öll nauðsynleg tæki og tól fyrir fundi séu til staðar og virki samkvæmt óskum fundarhaldara við upphaf fundar. Hótelbarinn er kjörinn fyrir þá sem vilja slaka á eftir annasaman dag og á sumrin er veitingastaðurinn Café Island opinn á kvöldin. Þar er boðið upp á fjölbreyttan matseðil með íslensku ívafi.


· Agriculture · Commerce & Services · Culture & Arts · Education · Entertainment ·
· Fisheries · Health · Industries · News & Media · Public Authorities ·
· Recreation & Sports · Shopping · Shipping & Transport · Tourism ·

· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·

Copyright © randburg.com - All rights reserved.

Randburg Is Your Path to The Future of Information