|
Rauðará |
English |
|
|
Rauðará var stofnuð í desember árið 1997, en eigendur eru Kristinn Arnar Stefánsson og foreldrar hans, Stefán Stefánsson og Linda Lou Arthur. Veitingastaðurinn er til húsa á Rauðarárstíg 37, í gamla Egils brugghúsinu, sem byggt var 1928. Hólmjárn J. Hólmjárn stofnaði öl- og gosdrykkjagerðina Þór hf. árið 1928. Hann lét byggja mikil ölgerðarhús við Rauðarárstíg árið 1930 og hefur Rauðará steikhús nú verið innréttað í aðalbyggingunni. Á stríðsárunum var bruggaður sterkur bjór í þessu húsi fyrir hernámsliðið. Árið 1967 flutti Ölgerð Egils alla starfsemi sína á Rauðarárstíginn og var hér starfrækt stærsta ölgerð á landinu fram til ársins 1985 er öll starfsemi ölgerðarinnar var flutt inn á Grjótháls. Veitingahúsið Rauðará Steikhús er án efa eitt vinsælasta og metnaðarfyllsta steikhús landsins. Á Rauðará leggjum við kapp á að veita þægilega þjónustu og skapa kvöldinu ljúfan og ógleymanlegan blæ. Á Rauðará skipum við glóðinni og viðarkolunum undantekningalítið í öndvegi. Það gefur matnum hið rómaða bragð sem skapað hefur Rauðará ótvíræðar vinsældir. Við leggjum áherslu á að hafa fjölbreytt og ríkulega útilátið grænmeti með réttum. Aðferðir okkar í matreiðslu eru afskaplega skarpar og helgast auðvitað fyrst og síðast af glóðinni. Engu að síður leitum við víða fanga, t.d. í franska, suður-evrópska, suður-ameríska og jafnvel í austurlenska matargerð. Þannig fléttum við saman því besta úr ólíkum eldhúsum til að skapa heild sem heldur nafni Rauðarár á lofti. Yfirbragð Rauðarár er mótað af af léttum ferskleika í þjónustu, af skarpri matargerð og af glæsilegu húsnæði sem kryddar kvöldið með andblæ hins liðna. Við leggjum metnað okkar í að allir réttir séu fallega framsettir en auðvitað fyrst og síðast einstaklega bragðgóðir. Á Rauðará leggjum við einstaka natni við val á hráefnum. Við matreiðum einungis sérvalið og sérverkað íslenskt nauta- og lambakjöt. Við matreiðum einungis nautakjöt af gripum sem fengið hafa sérstakt eldi hjá metnaðarfullum nautgripabændum. Við leggjum áherslu á að matreiða einungis lambakjöt af fé sem kemur af fjalli og hefur náð hinum eftirsóknarverða keim villibráðarinnar. Fisk og sjávarfang sækjum við að skipshlið. Veitingastaðurinn Rauðará er í einu sérstæðasta húsi borgarinnar, í gömlu brugghúsi við Rauðarárstíg 37. Húsið er byggt snemma á liðinni öld og umhverfið færir máltíðinni afar sérstæða stemmningu. Við bjóðum ykkur innilega velkomin í glæsileg húsakynni okkar að Rauðará og hlökkum til að þjóna þér til borðs. Við bjóðum einungis veitingar sem líða seint eða aldrei úr minni. |
![]()
|
![]()
· Agriculture · Commerce & Services · Culture & Arts · Education · Entertainment ·
· Fisheries · Health · Industries
· News & Media · Public Authorities ·
·
Recreation &
Sports · Shopping ·
Shipping &
Transport · Tourism
·
· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·
Copyright © randburg.com - All rights reserved.