|
Sæferðir
Sæferðir hefur yfir 20 ára reynslu í siglingum á Breiðafirði. Fyrirtækið er staðsett í Stykkishólmi, aðeins 2 klst. fjarlægð frá Reykjavík. Sæferðir bjóða upp á margskonar spennandi afþreyingu fyrir ferðamenn og hópa, m.a.:
Ferjan Baldur og Flatey
Suðureyjasigling
Sjóstangveiði
Sérferðir fyrir hópa og einstaklinga
Ferjan Baldur & Flatey
Ferjan Baldur siglir yfir Breiðafjörð frá Stykkishólmi til Brjánslækjar og hefur viðkomu í hinni heillandi og sögufrægu eyju, Flatey. Margir ferðalangar kjósa að taka ferjuna frá Stykkishólmi að morgni til, stoppa í Flatey, og halda svo til baka eða áfram yfir á Brjánslæk seinnipartinn. Þeir sem sigla yfir flóann með bíl geta sent hann á undansér á meðan stoppað er í Flatey, að kostnaðarlausu. Áætlun og verð má finna á vefsíðu okkar www.saeferdir.is
Suðureyjasigling
Bátsferð um magnað landslag Suðureyja Breiðafjarðar þar sem við skoðum meðal annars fjölbreytilegar bergmyndanir, sögulegar slóðir og sterkustu sjávarfallastrauma við Ísland. Á sumrin iðar svæðið af fuglalífi og má m.a. sjá toppskarfa, lunda, ritu, fýl, æðarkollu og ef heppnin er með okkur, konung íslenskra fugla, haförninn. Hápunktur ferðarinnar er þegar veidd eru ýmis skeldýr af botni sjávars og gestum gefst tækifæri á að smakka girnilegan hörpudisk og ígulkerjahrogn. Ferskara gerist það ekki!
Lengd ferðar: 2 klst & 15 mín.
Áætlun 2010:
15. - 31. maí 11:00
1. júní - 31.ágúst 11:00 & 14:30
1. - 15.sept. 11:00
Verð: 5.950 kr. fyrir fullorðna, börn 16-20 ára fá 50% afslátt, börn 0-15 ára: Frítt
Sjóstöng
Í þessari skemmtilegur ferð er siglt er um eyjarnar óteljandi á 50 manna bát. Skipstjórarnir okkar þekkja svæðið einstaklega vel og vita hvar best er að renna fyrir þeim gula. Njóttu frábærrar náttúru Breiðafjarðarins á nýjan og spennandi hátt!
Lengd ferðar: 2 tímar
Áætlun 2010:
júní - 31. ágúst 11:00 & 13:00
(á öðrum tímum eftir samkomulag)
Verð:
Fullorðnir: 6.700 kr.
Stöng*: 1.600 kr.
Börn 12-15 ára: 3.350 kr.
Börn 0-11 ára: Frítt
*Fjölskyldur eða ættingjar geta deilt einni stöng
|