Randburg.com -> Iceland -> Tourism -> Activities


English

Skíðasvæði Reykjavíkur

E-mail


Skíðasvæðin eru opin þegar færð, snjór og veður leyfir. Rútur fara frá BSÍ - sími 552 2300. Upplýsingar um skíðafærð - sími 570 7711.

Skíðasvæðið Bláfjöllum
Í Bláfjöllum er stærsta skíðasvæði landsins með 11 skíðalyftum. Allir, jafnt byrjendur sem keppendur geta fundið brekkur við hæfi og á kvöldin eru þær helstu upplýstar. Göngubrautir eru lagðar þegar veður leyfir og eru þær 3,5 til 10 km að lengd og er 5 km kafli upplýstur.

Þjónustumiðstöð með veitingasölu og aðstöðu fyrir nestisfólk.

Skíðaleiga.
Skíðaskóli er á staðnum og býður hann upp á kennslu um helgar.
Sérstakar brautir fyrir brettaiðkendur eru meðal helstu nýjunga á svæðinu og verða þær helstu upplýstar.
Bláfjallaskálinn rúmar 150 manns (ekki í gistingu) og hægt er að nýta hann sem veislusal, fundasal og samkomusal.

Skálinn er til útleigu á sumrin fyrir t.d.:
Afmælisveislur
Ættarmót
Brúðkaup
Ráðstefnur - fundir
Starfmannahóf
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 561 8400
Í Bláfjöllum er opið mánudaga til föstudaga frá kl 10 til 22 en um helgar og á almennum frídögum frá kl. 10 til 18.

Skálafell
Skálafell er afar heppilegt skíðasvæði fyrir alla skíðaiðkendur en svæðið er sérstaklega gott fyrir byrjendur og fjölskyldufólk. Í Skálafelli eru 5 lyftur og ein af þeim er lengsta stólalyfta landsins 1200 m löng og eru helstu brekkur upplýstar.

Göngusvæði
Þjónustumiðstöð með veitingasölu, nestisaðstöðu og skíðaleigu. Reynt er að útbúa sem besta aðstöðu fyrir brettaiðkendur og fer það eftir aðstæðum hverju sinni. Skíðakennsla um helgar. Hópar geta pantað sérstaka kennslutíma. Gistiaðstaða er í skálum skíðadeildanna, og er pláss fyrir ca. 100 manns. Skíðafélögin Ármann, Fram og Breiðablik bjóða skála sína til útleigu eftir nánara samkomulagi.

Hengilssvæðið
Á Hengilssvæðinu eru tvö skíðafélög, Skíðadeild Ármanns og skíðadeild ÍR. Samtals er 7 lyftur á svæðinu og þar af eru tvær byrjendalyftur. Skálar félaganna hafa verið leigðir út yfir vetrarmánuðina.

Opnunartími er:
Föstudaga, laugardaga, sunnudaga og mánudaga frá kl 10 til 18. þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl 10 til 21.

SUNDLAUGAR REYKJAVÍKUR

Reykjavik Skiing areas

Ski rental and Skiing School - Reykjavik

Bláfjöll and Skálafell Skiing Area


· Agriculture · Commerce & Services · Culture & Arts · Education · Entertainment ·
· Fisheries · Health · Industries · News & Media · Public Authorities ·
· Recreation & Sports · Shopping · Shipping & Transport · Tourism ·

· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·

Copyright © randburg.com - All rights reserved.

Randburg Is Your Path to The Future of Information