![]() ![]() ![]()
|
| Randburg.com -> Iceland -> Tourism -> Restaurants |
|
Skíðaskálinn í Hveradölum Suðurlandsvegi Iceland Sími 567 2020 Fax 553 9710 |
German English |
![]() |
|
Veislur og veitingar Skíðaskálinn í Hveradölum er frábær staður til að njóta félagsskapar í fallegu umhverfi. Skíðaskálinn hefur á að skipa fjórum mismunandi stórum veislusölum sem taka frá 50 - 170 manns. Gamla stofan, Koníaksstofan og Arinstofan ásamt Betri stofunni eru vel búnir veislusalir til hvers kyns veisluhalda, funda, ráðstefnu eða vörukynninga. Skíðaskálinn býður alþjóðlega matreiðslu ásamt því að leggja áherslu á íslenska og þjóðlega rétti. Lambakjöts- og fiskihlaðborð Skíðaskálans eru víðfræg. Matseðill hússins kemur á óvart svo og eftirréttaseðillinn. Skoðaðu matseðilinn okkar Matreiðslumeistarar okkar aðstoða þig við val á matseðli hvort heldur sem um er að ræða hátíðarmatseðil fyrir stærri eða minni veislur eða léttan pinnamat fyrir fundi eða kynningar. Við erum sérlega stolt af glæsilegum vínlista okkar. Og að sjálfsögðu minnum við á okkar landsfrægu kaffihlaðborð á sunnudögum yfir sumartímann. Láttu okkur koma þér þægilega á óvart. Gerum verðtilboð fyrir stærri sem smærri hópa. Við búum yfir áratuga reynslu í veisluþjónustu og matreiðslu. Ævintýraferðir Skíðaskálinn í samvinnu við Ævintýraferðir bjóða upp á margvíslegar ferðir svo sem hestaferðir, vélsleðaferðir, gönguferðir, o.s.frv. í nágrenni Skíðaskálans í Hveradölum. Skemmtileg tilbreyting fyrir vinahópa, erlenda gesti eða starfsmannafélög. Fundir og ráðstefnur Skíðaskálinn í Hveradölum hefur verið í meira en hálfa öld sannkallað sæluhús á miðri Hellisheiði. Í gegnum tíðina hefur þjónusta Skíðaskálans sífellt verið að aukast og aðlagast breyttum tímum. Nú bjóðum við fyrirtækjum og félagasamtökum fundar- eða kennsluaðstöðu í Skíðaskálanum alla daga vikunnar. Við getum boðið aðilum að vera með Skíðaskálann út af fyrir sig, hálfan eða allan daginn, með afnot af fjórum sölum. Til staðar er myndvarpi, sýningartjald, flettitafla og möguleiki er að vera með hljóðkerfi. Einnig getum við leigt önnur tæki sem til þarf, ásamt því að útvega hagstæðar rútuferðir fram og til baka svo og tónlistarmönnum. Fyrirtæki hafa töluvert notfært sér þessa þjónustu undir ýmiss hópefliverkefni, gæðastjórnunar - og vinnufundi margskonar. Að sögn þeirra sem reynt hafa er kyrrðin mikil og skapast þar einstakt andrúmsloft sem gerir það að verkum að fundirnir verða oft árangursríkari. Fundargestir geta nýtt sér heitu pottana hjá okkur og umhverfi til gönguferða, einnig er möguleiki á að skipuleggja vélsleða- og hestaferðir. Hafðu samband og við skoðum hvað við getum gert fyrir þig. Rútuferðir Fyrir hópa getum við útvegað hagstæðar rútuferðir fram og tilbaka. Útvegum einnig tónlistarmenn og ýmsar aðrar upákomur fyrir stærri hópa. Reiknað er með hópmatseðli fyrir stærri sem og smærri hópa |
![]() ![]()
|
· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·
Copyright © randburg.com - All rights reserved.