|

English
Leiðarlýsing um Snæfellsbæ
Fyrsti hluti
Snæfellsbær er byggðin umhverfis Snæfellsjökul og nær í stórum dráttum yfir landið vestanvert við Elliðahamar í Staðarsveit að Búlandshöfða milli Ólafsvíkur og Grundarfjarðar. Að sunnanverðu liðast þjóðvegur 54 um grösuga og vötnum prýdda Staðarsveit. Á Staðastað mun Ari fróði hafa sett saman Íslendingabók eða Landnámu öðru nafni. Í Langaholti bjó landnámskonan Langaholts-Þóra sem “lét gera skála sinn um þvera þjóðbraut og lét þar jafnan standa borð, en hún sat úti á stóli og laðaði þar gesti, hvern er mat vildi eta" eins og segir í Landnámu.
Á Lýsuhóli er skóli, sundlaug og félagsheimili. Vatnið í Lýsuhólslaug er ölkelduvatn sem þykir heilnæmt til baða. Sjaldgæfar steintegundir og hveraútfellingar má finna á Lýsuhóli.
Við Axlarhyrnu liggur vegur 54 upp á Fróðárheiði yfir til Ólafsvíkur. Heiðin er greiðfær og þaðan er afar víðsýnt yfir Breiðafjörð og Faxaflóa. Við sjóinn neðan Axlarhyrnu standa Búðir. Þar eru merkar fornleifar og kirkja í umsjón Þjóðminjasafns. Búðahraun hefur runnið úr tveimur sjálfstæðum gígum sem hafa myndað fell sem nefnt er Búðarklettur. Hraunið er vel gróið og þar hafa fundist nokkrar plöntutegundir sem ella eru sjaldgæfar í flóru Íslands. Búðahraun og allt umhverfi þess er friðað.
Undir Axlarhyrnu er ekið eftir Útnesvegi 574 í fjallsrótum um Breiðuvík allt til Arnarstapa. Á bænum Öxl bjó eitt sinn Axlar-Björn sá sem sextán mennina drap. Hann er talinn mesti fjöldamorðingi íslandssögunar og hlaut málagjöld eftir því. Í fjallinu Rauðfeldi í Breiðuvík er Rauðfeldsgjá, þröngt gil inn í móbergshlíðina. Austanvert við Stapafell liggur fjallvegur yfir Jökulháls til Ólafsvíkur. Hann er fær fólksbílum yfir hásumarið.
Á Arnarstapa er byggðakjarni og fjöldi sumarbústaða. Umgjörð Stapahafnar er stórkostleg og þaðan gera margir smábátaeigendur út á sumrin. Þar er stytta af Bárði Snæfellsás eftir Ragnar Kjartansson listamann. Greiðfær, skemmtileg og snotur gönguleið, sem tekur rúman hálftíma er milli Arnarstapa og Hellna.
Á Hellnum er nokkur byggðakjarni og falleg höfn. Þar er Maríulindin/Gvendarbrunnur, en sagt er að María guðsmóðir hafi þar birst Guðmundi góða biskup árið 1230. Ströndin neðan Hellna, allt að Arnarstapa og Sölvahamri, þykir einkar fögur, að mestu byggð upp af stuðlabergi. Hún er friðlýst. Vegurinn niður að Hellnum liggur á gjallrana austan Bárðarlaugar en svo heitir lítið fell með eldgíg neðanvert við þjóðveginn. Í gígnum er hin“eiginlega" Bárðarlaug, lítil tjörn, sem sagt er að Bárður Snæfellsás hafi laugað sig í. Við Útnesveg 574 er áningarstaður með minningarskilti um Guðríði Þorbjarnardóttur, fyrstu evrópukonuna sem ól barn á meginlandi Norður-Ameríku fyrir þúsund árum. Hún fæddist á Laugarbrekku, eyðibýli sem enn mótar fyrir túnstæðinu á, í sjónhendingu til suðurs.
|

Á toppi Snæfellsjökuls á Jónsmessu.

Ferðalangar í friðlýstri hellnafjöru.

Ólafsvíkurhöfn í þoku að kvöldlagi.

Arnarstapahöfn með Stapafell og Snæfellsjökul í baksýn.
|