English

Leiðarlýsing um Snæfellsbæ

Annar hluti


Næst er farið yfir Dagverðará en þar verða suðurmörk hins væntanlega þjóðgarðs. Áningarstaður er við Svalþúfu og Lóndranga, sem eru eftirstöðvar eldgígs sem hafið hefur brotið niður. Í Svalþúfubjargi er mikið fuglavarp og úthafsaldan brotnar við Drangana sem eru gígtapparnir. Af Svalþúfu sést vel yfir vogskorna bjargströndina í suðurátt. Svalþúfa og Lóndrangar eru “í túnjaðri" Malarrifs, síðasta býlinu sem enn stendur uppi á strandlengjunni frá Hellnum til Gufuskála. Áfram til vesturs er ekið að Djúpalóni. Til að komast niður á ströndina þarf að aka eftir afleggjara frá þjóðveginum og niður á snyrtilegan áningarstað við Nautatraðir. Þaðan er gengið niður á Djúpalónssand. Fjörumölin í víkinni er basaltgler, biksvört, fáguð sem perlur og umhverfið ægifagurt. Tígulegur Snæfellsjökull gnæfir yfir og í hlíðum hans fléttast fagurspunnið hraunstraumamynstur eins og víravirki. Þarna eru líka hin frægu steinatök, fjórir steinar sem nefnast Amlóði, Hálfdrættingur, Hálfsterkur og Fullsterkur en vertíðarmenn reyndu við þá þegar þeir voru á leið út í Dritvík.

Um Djúpalónssand velkist nokkuð járnabrak, leifar bresks togara sem rak upp í bergið norðan víkurinnar í marsmánuði árið 1948. Þar varð mikill mannskaði og enn í dag vitja ættingjar og afkomendur skipverjanna sem fórust þarna þessarar fjarlægu “grafar". Þeim er þetta brak heilagt sem kirkjugarður og því er það ekki fjarlægt. Frá Djúpalónssandi liggur gönguleið yfir í Dritvík, hina fornu og sögufrægu verstöð. Þar vottar enn fyrir rústum sem gefa hugmynd um aðstöðu og aðbúnað sjómanna fyrri alda. Sunnanvert í Dritvík er stór klettadrangi sem nefnist Tröllakirkja. Í hann má komast um stórstraumsfjöru. Austanvert í honum er hellisskúti sem sagt er að Bárður og félagar hafi blótað í sér til heilla eftir landtökuna í Dritvík.

Á leiðinni vestur fyrir nesið í átt til Gufuskála er fjöldi eldvarpa, sem hér eru kölluð hólar. Hægt er að ganga upp á Litla Saxhól, laglegan gjallgíg, krýndan fallegum hraunkraga. Sunnar má aka inn í stóran gíg í Hólahólum. Sá gígur er mikill um sig, sporöskjulaga og opinn til austurs. Gígurinn minnir á hringleikahús og hefur góðan hljómburð. Eftir Gufuskálamóðum rennur Móðulækur.Væntanlegur þjóðgarður undir Jökli mun takmarkast til norðurs við Móðulækinn fyrst um sinn. Strax þegar komið er yfir brúna á “Læknum" liggur vegarspotti upp í Eysteinsdal ofan við og gegnum hraunið norðanvert við Snæfellsjökul. Þessi vegur opnar fjallendið og gefur greiðan aðgang að mörgum áhugaverðum stöðum, mikilfenglegu útsýni og veitir tilefni til stuttra gönguferða um hlíðar og fell.

Þar sem Útnesvegur beygir til austurs á Gufuskálamóðum liggur jeppaslóði til vesturs út á Öndverðarnes. Þar skiptir straumum milli Faxaflóa og Breiðafjarðar og sjór er þar aldrei kyrr. Á Öndverðarnesi var búið fram á sjötta áratug aldarinnar. Þaðan var útræði og þar er eina vatnsbólið brunnurinn Fálki, sem aldrei þrýtur, spölkorn frá bæjarrústunum. Á leiðinni út í Öndverðarnes er gaman að líta ofan í Skarðsvík og í bakaleiðinni geta þeir sem ekki eru lofthræddir notið þess að sjá ólgandi hafið undir Svörtuloftum. Á Gufuskálum var lengi lóransstöð sem nú er aflögð. Eftir stendur mastrið háa sem varpar langbylgjusendingu Ríkisútvarpsins út um allan heim. Byggingarnar hafa fengið nýtt hlutverk í þjónustu alþjóðlegs slysa- og almannavarnaskóla. En ef til vill eru Gufuskálar merkastir fyrir fornar mannvistarleifar sem margir telja að séu eldri en tímatal Landnámu gefur til kynna.


Einbúi við sólsetur í Snæfellsbæ.


Maríulindin helga á hellnum.


Hin magnþrungna Rauðafellsgjá.


Á Snæfellsjökli.

Heim · Sjávarútvegur · Ferðaþjónustuaðilar · Önnur starfsemi


Leiðarlýsing um Snæfellsbæ:
Fyrsti hluti · Annar hluti · Þriðji hluti

· Agriculture · Commerce & Services · Culture & Arts · Education · Entertainment ·
· Fisheries · Health · Industries · News & Media · Public Authorities ·
· Recreation & Sports · Shopping · Shipping & Transport · Tourism ·

· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·

Copyright © randburg.com - All rights reserved.

Randburg Is Your Path to The Future of Information