English

Leiðarlýsing um Snæfellsbæ

Þriðji hluti


Hellissandur er ein elsta útgerðarstöð landsins. Þar er byggð mjög rótgróin og sérstök, íbúar um 600. Gamla byggðin er einkum á bökkunum við sjóinn þar sem þorpið byggðist upp kringum afar erfiða lendingu sem kallast Brekknavör en var í vari fyrir verstu brimsjóum. Sjómenn gerðu að aflanum í hellisskúta, Brennuhelli, í fjörunni undir snarbröttum hraunbökkum. Síðan báru þeir aflann upp og hífðu bátana þannig að þeir stóðu eiginlega lóðrétt í bjargbrúninni, festir með hælum ofan hennar. Af helli þessum er staðarnafnið dregið. Sandarar gerðu höfn utan við þorpið, í svokallaðri Krossavík, um miðbik þessarar aldar. Sú höfn var í notkun um nokkurra ára skeið en með breyttum útgerðarháttum var hún aflögð upp úr 1960 eftir að Rifshöfn varð aðalhöfn Hellissands. Þessi hafnarmannvirki voru úr steinsteypu og að mestu unnin af handafli sjómannanna sjálfra.

Á Hellissandi er myndarlegt sjóminjasafn í Sjómannagarðinum. Þar er höggmyndin Jöklarar eftir Ragnar Kjartansson. Til hliðar við Sjómannagarðinn er almenningsgarðurinn Tröð innan aldagamals grjótgerðis. Milli Rifs og Hellissands er hið forna höfuðból Ingjaldshóll. Þar ólst skáldið og umbótarmaðurinn Eggert Ólafsson upp. Honum og Ingibjörgu brúði hans hefur verið reistur minnisvarði á kirkjuhólnum; tveir steinar tilhöggnir af listamanninum Páli á Húsafelli. Kirkjan á Ingjaldshóli mun vera elsta guðshús Evrópu, og þar með Íslandi, gert af steinsteypu. Í Rifi búa um 150 manns. Þar er landshöfn byggð á 6. og 7. áratugnum. Mikil útgerð er frá Rifi og þar er starfræktur fjöldi fiskvinnslustöðva. Í kring um Rif er eitt mesta kríuvarp á Íslandi og á lónunum við þjóðveginn er mjög fjölbreytt fuglalíf. Þegar líður á sumar safnast þar saman hundruð óðinshana sem fylgjast má með af útskoti sem gert hefur verið fyrir fuglaáhugamenn. Á öldum áður var góð, náttúruleg höfn við Rifsós fyrir hafskip þeirra tíma og þar var sögufrægur verslunarstaður. Meðal annars stunduðu enskir kaupmenn þar verslun á fimmtándu öld - í óþökk Dana! Í viðureign við þá var Björn ríki Þorleifsson, hirðstjóri á Skarði, veginn árið 1467. Steinninn sem munnmæli herma að Björn hafi verið veginn við sést enn, Björnsteinn. Tíu árum síðar, eða árið 1477, benda ýmsar heimildir til að hinn spænska sæfara “Cristoforo Colombo" hafi borið að Rifi með kaupfari frá Bristol. Kristófer þessi mun hafa haft nokkra viðdvöl á Ingjaldshóli og spurst fyrir um vesturferðir Breiðfirðinga fyrr á öldum. Árið 1492 “fann" hann Ameríku!

Frá Rifi liggur leiðin um breiðan veg undir Enni (Ólafsvíkurenni) til Ólafsvíkur. Ennið var lengi mikill farartálmi milli þessara byggða vegna grjóthruns, sjávargangs og skriðuhættu. Nú er Ennisbrautin “greiðfær innanbæjarvegur". Á Breiðinni milli Rifs og Ennis er tveggja brauta flugvöllur með fullkomnum búnaði. Ólafsvík er stærsti þéttbýliskjarninn í Snæfellsbæ með um 1000 íbúa. Sjávarútvegur og stór höfn móta bæjarmyndina í Ólafsvík. Bæjarstæði er óvíða fegurra en í Ólafsvík. Fossar steypast af fjallsbrúnum að baki byggðinni og vatnsfarvegir hafa fengið að halda upprunalegu svipmóti sínu í bænum. Í Ólafsvík hefur verið komið upp skemmtilegu verslunar- og verksháttasafni í “Pakkhúsinu", gömlu verslunarhúsi sem reist var árið 1844 og stendur í hjarta bæjarins. Þar er líka upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn. Innan við Ólafsvík tekur Fróðárvíkin við. Á Fróðá urðu hin frægu “fróðárundur" sem sagt er frá í Eyrbyggjasögu. Um Fróðárheiði liggur aðalvegurinn milli Ólafsvíkur og Staðarsveitar. Þegar að vegamótum kemur má halda áfram til austurs að Búlandshöfða, Grundarfirði og annara byggða við Breiðafjörð.


Gatklettur í sjávarróti.



Íshellir í Snæfellsjökli.


Krían, fugl Snæfellsbæjar.


Hin svarta Búðarkirkja.


Ólafsvík séð frá sjó.


Ingjaldshólskirkja, elsta steinsteypta kirkja í Evrópu.

Heim · Sjávarútvegur · Ferðaþjónustuaðilar · Önnur starfsemi


Leiðarlýsing um Snæfellsbæ:
Fyrsti hluti · Annar hluti · Þriðji hluti

· Agriculture · Commerce & Services · Culture & Arts · Education · Entertainment ·
· Fisheries · Health · Industries · News & Media · Public Authorities ·
· Recreation & Sports · Shopping · Shipping & Transport · Tourism ·

· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·

Copyright © randburg.com - All rights reserved.

Randburg Is Your Path to The Future of Information