|
Videyjarstofa Videy Reykjavik Iceland Tel.: +354 533
5055 |
French German
|
![]() |
|
Viðey er ekki langt undan. Þangað er ekki nema 5-7 mín. sigling á hinni farsælu Maríusúð. Þegar þangað er komið, er um margt að velja. Þar er hægt að njóta útivistar í fallegri, friðsælli náttúru, sem jafnframt er rík af sögulegum minjum. Til þess eru skipulagðar gönguferðir með staðarhaldara á þriðjudagskvöldum og laugardagseftirmiðdögum að sumrinu, einnig staðarskoðun á sunnudögum. Þar er einnig hægt að njóta jafnt einfaldra sem glæsilegra veitinga í Viðeyjarstof einu elsta húsi landsins. Þar er næstelsta kirkja landsins, vinsæl fyrir hjónavígslur og vel sótt í guðsþjónustum sumarsins. Við leggjum áherslu á sérstöðu Viðeyjarstofu. Þú finnur engan annan veitingastað eins eða svipaðan. Húsið sjálft er listaverk, teiknað af N. Eigtved, þekktasta rókokómeistara Dana. Það er búið listaverkum eftir íslenska meistara og geymir ýmsa dýrgripi aðra. Í slíku umhverfi er gott að njóta góðra veitinga úr margrómaðri matarhefð Viðeyinga fyrr og síðar. Kynntu þér, hvað við bjóðum. Í Viðey er ein frægasta veisluhefð á Íslandi. Á klausturtímanum voru þar glæsiboð og brúðkaup. Frægustu veislur 19. aldar voru einnig haldnar þar og af þeim eru til góðar sögur. Þessari hefð er fram haldið í dag af mikilli reisn. Hin einstæðu salarkynni á Stofuloftinu í risi Viðeyjarstofu bjóða upp á svipmikinn glæsileik. Þar er gott rými fyrir allt að 150 manna borðhald og 250 manns í hanastéli. Hringdu og fáðu upplýsingar og tillögur okkar um allt fyrirkomulag. Við nefnum fundi, árshátíðir, brúðkaup og skírnir, afmæli, móttökur ýmsar, hanastél og jólahlaðborðið margfræga. |
![]() ![]()
|
· Agriculture · Commerce & Services · Culture & Arts · Education · Entertainment ·
· Fisheries · Health · Industries
· News & Media · Public Authorities ·
·
Recreation &
Sports · Shopping ·
Shipping &
Transport · Tourism
·
· Home · Search · About Randburg · What's New · Sign Up! ·
Copyright © randburg.com. All rights reserved.